Húúúún á afmæli í dag!!!Mardís og Ragga
Dagurinn í dag, 8.október er merkilegur dagur, því að hún Mardís afmæli, hún er tvítug!!
Og myspace síða um þetta: Held þetta verði skemmtilegt!!
Eins og er eyðir hún deginum í túristaferð með foreldrum sínum. Á meðan sit ég heima að læra, vinna upp það sem eg hef misst úr þar sem ég hef verið veik síðustu tvo daga, en fékk heiftarlega gubbupest í fyrradag, frekar leiðinlegt.. og hef aðeins borðað kjúklingasúpu og súkkulaði og drukkið sítrónuvatn með hunangi í tvo daga. En er öll að koma til og verð komin í alvöru mat í kvöld vonandi! Þannig að nú höfum við báðar verið veikar og vona ég innilega að sá pakki sé þá bara búinn í bili!!
Héðan er allt fínt að frétta. Búið að vera rosa fínt veður og enn hægt að ganga um í stuttermabolum og jafnvel berleggja! (þetta er til allra í kuldanum heima sem voru leiðinlegir við mig þegar ég var útí Indlandi í monsoon rigningu meðan heitasti mánuður í sögu Íslands stóð yfir). Eitt afar fyndið atvik sem átti sér stað þarsíðustu helgi en þá buðum við Andreu í mat til okkar og við kíktum svo út, höfðum fyrr um kvöldið rætt það að hann Ásgrímur vinur okkar væri víst í Barcelona, og hvað það hefði verið gaman að hitta hann. Eftir mat og nokkur hvítvínsglös héldum við svo út á Römblu í hraðbanka og viti menn, gengur Ási framhjá okkur, þvílík og önnur eins tilviljun! Og að sjálfsögðu fórum öll saman á Catwalk og dönsuðum fram á rauða nótt!
við
ég ánægð að sjá Ása
Síðasta laugardagsmorgun komu Heimir og Ella (foreldrar Mardísar fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu en ættu að vera með það á hreinu) þau munu dvelja hjá okkur í viku! Frábært að fá þau, okkur vantaði smá foreldraknús! Fórum öll saman á Barcelona vs. Atlético Madrid á laugardagskvöld og djöfulsins snilld sem það var, leikurinn fór 6-1 fyrir Barcelona og Eiður frændi skoraði meira segja ;) Mjög skemmtilegur leikur, eitthvað sem við vorum ekki alveg að búast við! Gátum þó ekki öll setið saman, þar sem það er megavesen að fá 4 sæti saman vegna þess að klúbbmeðlimir eiga nánast öll sæti á leikvanginum en við gátum þó setið tvö og tvö. Ég og Mardís sátum hliðina á sætum gömlum manni sem var með vindil –sem minnti mig á pabba. Og hikaði hann ekki við að faðma sessunaut sinn hana Mardísi eftir hvert mark, og þau voru nú ekki fá ..hahah! Á þriðjudag fórum við svo á Súkkulaðisafnið, ótrúlegt hvað hægt er að gera við súkkulaði annað en að borða það, mjög skemmtilegt fyrir súkkulaðiloverinn mig, fyrir utan það að ég var orðin veik og gat þar af leiðandi ekki étið neitt súkkulaði heldur fór heim að vera veik og æla.

Það sem er framundan
Á föstudag ætlum við að fara á Zombiegönguna sem er eins konar skrúðganga með fólki sem hefur klætt sig upp sem uppvakningar. Hún er haldin í bæ sem heitir Sitges, rétt hálftíma frá Barcelona. En Julí kennarinn okkar (þessi leiðinlegi) sagði okkur frá henni, en hann sagði einnig að í þessum bæ búa mikið af samkynhneigðu fólki og að þetta væri bær hrollvekjanna, eða eitthvað þannig, Mardís heldur því fram að hann hafi sagt bær klámmyndanna og getur það líka vel verið, en maður heyrir bara það sem maður vill heyra ;) Allavega sé ég enga sérstaka tengingu milli kláms og uppvakninga, en kannski gera það einhverjir!
Hér er afar steikt myndband sem er auglýsing fyrir Zombiegönguna: http://tzss.org/?p=184
http://www.myspace.com/sitgesfilmfestival

Á laugardag: ekki alveg komið á hreint, smá afmælisteiti fyrir Mardísi líklegt, eða sangríupartý hjá Hollendingunum í bekknum okkar!
Eitt annað sem er skemmtilegt...það er Halloween þema í Port Aventura skemmtigarðinum, eitthvað fyrir mig! En ætla þó að bíða með að fara þangað þar til Haukur kemur, sem er aðeins eftir 20 daga í dag!
Og LOKSINS loksins loksins er evran að skána, fínt að festa hana bara, gott mál. Var einmitt farin að sjá fram á að leigan myndi hækka um 20 þús, það er ekkert lítið! Þetta stefndi bara í tómt rugl.
p.s. ég kem í helgarblaði DV, einmitt viðtal sem hann Boði blaðamaður tók, í sambandi við kreppuna, góðvinkonu okkar allra, þið vitið bara af því ;)
Nóg af myndum á leiðinni!
Kossar og knús og ást og söknuður
Ragnheiður og Mardís afmælisbarn
Athugasemdir
Annars sendi ég bara knús og kossa til ykkar og Mardís innilega til hamingju með daginn í dag þetta er merkur áfangi í líf allra.
Hafið það sem alltra best og góða skemmtun næstu helgi.
Til hamingju með afmælið!!!! Kveðjur frá gamla settinu sem er á leið til Skotlands í gjaldeyris ruglið. Það hlýtur að hafa verið tær snild að vera á Barcelona leiknum.
Kveðja úr sveitinni
Hrönn
uhumm já mig langar svolítið að sjá myndir ;)
Knús
Gaman að heyra að þið séuð að skemmta ykkur vel þarna úti!
Langar ekkert smá að koma í heimsókn en þar sem eg er verulega fátækur námsmaður sé ég það ekki alveg gerast :/
En haldið þið áfram að vera duglegar að blogga og setja inn myndir ;)
P.S: Langar svo að heyra almenninlega i ykkur, eruð þið með síma sem hægt er að hringja i?
Knus og kossar,
Tinninn

Innilegar hamingjuóskir með daginn, vildi að ég gæti verið með ykkur.
Áttu yndislegan og góðan dag.
Eskfirðingar