þegiðu gústi!Mardís og Ragga

Jæja, þá er enn ein helgin liðin og erum við bráðum að fara að halda uppá 3ja vikna afmæli okkar hér í Barcelona - þetta er kannski soldið fljótt að líða eftir allt saman og um að gera að nýta tímann hérna sem allra best!

Bryndís Þóra (dvelur nú í Salamanca í spænskuskóla) kom og gisti hjá okkur eina nótt á fimmtudaginn síðastliðinn en ástmaður hennar hann Matti var einmitt að koma á föstudaginn hingað og heimsækja hana og ég get ekki annað sagt en að við höfum nú öfundað hana töluvert! En það var yndislegt að fá hana, svo langt síðan ég hef séð hana:)

Helgin er svo búin að vera afar fín. Á föstudaginn gerðum við okkur góðan dag og skelltum okkur út á lífið. Ég eldaði pasta og við buðum Andreu í mat. Þegar við fórum út þá löbbuðum við uppá römbluna og ætluðum að fara á bar þar en nei, hittum við ekki Ása vin okkar úr Verzló á rölti þar en hann var einmitt staddur hér í vinnuferð. Ótrúlega gaman og ég tala nú ekki um ólíklegt að rekast á hann á gangi um römbluna. Við drógum hann því með okkur á einhvern skemmtistað og svo leið nóttin og allir heim á leið.
Laugardagurinn fór nú í allt og ekki neitt, við stöllur skelltum okkur á "tropic thunder" um kvöldið - það er nú meira steikta myndin. En fín samt.

Sunnudagurinn var yndislegur, við vöknuðum eldsnemma og drifum okkur út á lestarstöð og fórum í heimsókn til Erlu, Siggu og Gústa. En Erla og Sigga eru snilldar systur ömmu minnar og Gústi maðurinn hennar Erlu lét sig auðvita ekki vanta. Þau voru á Llord de mar ströndinni og fengum við að gista þar í boði þeirra eina nótt. Ótrúlega gaman að koma þangað og liggja smá í bikiní í sólinni. Í dag vöknuðum við svo og í tilefni 30 og 30 ára afmæli Erlu þá skelltum okkur á Tossa de mar ströndina sem er æðislega fallegur svona spánskur strandarbær ca korteri frá llord de mar. 
Helgin var sumsé rosalega notaleg og frábrugðin síðustu tveim helgum.

Svo tekur skólinn bara aftur við og ég tók eiginlega þá ákvörðun í síðustu viku að taka level 2 í skólanum aftur. Var ekki alveg að ná því og mig langar að hafa þetta alveg pottþétt. Ég ætla samt að gefa morgundeginum séns líka, en ég hugsa að ég færi mig í seinni tímanum á morgun. Svo ég sé fyrir því að ég og Ragga séum going apart....

En 9 dagar í 20.ára afmælið mitt og ekki nema 5 dagar í mömmu og pabba!! Það verður svo gott að knúsa þau:)

Myndir frá síðustu dögum á:


Adios;)

p.s.
og já
Vill einhver gjöra svo vel að rétta allt helvítis ruglið af sem er í gangi heima á klakanum - þetta gengur náttúrulega ekki lengur. Evran 144 kr, dkk, rúmlega 19, dollarinn rétt undir 100 kr!!!

Athugasemdir

1
Anna skrifar:
Ég og Bjössi erum farin að syngja á Strikinu til að verða okkur um matarpeninga. Svo illa er íslenska krónan að fara með okkur...
29. september 2008 klukkan 21:25
2
Alexandra Mjöll ÁgústsdóttirÞegiðu gústi... hahahahahhahahahhahahhahahha

-kannast við kauða...

og hey ekki væla neitt... pundið er i %(%##% 180 kr... er ekki að fíla þetta búllsjitt.....

-Lex

30. september 2008 klukkan 16:11
3
BryndísÞóra skrifar:
Takk aftur æðislega fyrir mig ,svo notalegt hjá ykkr og gaman að sjá ykkur sætu!
Sé ykkur svo fljótlega aftur örugglega :D
02. október 2008 klukkan 17:45

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hefur þú komið til Barcelona?

Prófíll

  • Nafn: Mardís og Ragga
  • Staður: 08001 Barcelona
  • Heimilisfang: Rambla Del Raval 47, 3-1
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: Tvær íslenskar stelpur að læra spænsku í Barcelona

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...