nýr sambýlingur o.flMardís og Ragga
Jæja.. það er nú alveg þokkalega mikið sem hefur á daga okkar drifið síðustliðnu daga.Það helsta er kannski að Elín er flutt til okkar síðustu vikuna hennar. Það var brotist inní íbúðina hennar og stolið lyklunum af þeim og eitthvað. Hollenska stelpan sem hún bjó með gjörsamlega fríkaði út og eftir að hafa vælt yfir þeim hörmungum sem eru alltaf að ske fyrir hana, þá ákvað hún að panta sér flug heim, samdægurs .. lét ekki mann né annan vita, fékk ekkert endurgreitt frá skólanum, skilaði ekki lyklunum af íbúðinni og já - bara fór heim til Hollands. Hin norska stelpan sem hún bjó með var ekki alveg svona dramatísk og flúði ekki heim fyrr en tveim dögum seinna. Svo þá var Elín eftir ein í íbúðinni!!
Skólinn okkar sannaði enn á ný gildi sitt eða hitt þó heldur og hló bara að Elínu þegar hún var segja þeim frá öllu þessu og vildi ekkert gera og sagði ekkert til um það hvort það ætlaði að skipta um lás að íbúðinni eða ekki. En semsagt skólinn okkar svaraði ekki á laugardaginn þegar þetta gerðist, heldur bara talsmaður skólans í Hollandi. Og þetta var alveg mega mál... löggan kom með byssur og alles og gerði húsleit eins og í hollywood mynunum (já, mér finnst það stórmerkilegt!! )
Allavega - þá buðum við henni að vera hér síðustu vikuna sína sem hún þáði með þökkum. Bara gaman að hafa eina aukalega í smá stund.
Við gerðust kærulausar í fyrsta sinn síðan við komum hérna út og fórum á létt skrall á manudagskvöldið.. Hjaltalín var að spila hérna og við fórum og ætluðum að horfa á þá.. tókst samt að klúðra því en kíktum á HIPHOP kvöld á Opium bar eftir það... mjööög gaman sko.
Kíktum á Bond myndina líka í gær ... ég verð nú að segja að ég var að búast við einhverju meiru! Olli mér soldnum vonbrigðum bara..!!
En nú er farið að styttast all verulega í heimför og er maður orðinn þokkalega spenntur. Jólaljós og skreytingar eru komnar upp um alla borg, nístingskuldi bara eins og heima er hér alla daga og fleira svo maður er orðinn ansi spenntur.
Auk þess verður svo YNDISLEGT að fá að hitta og knúsa alla aftur.. finnst eins og það séu ár og aldir síðan maður sá alla síðast.
Eeen það eru samt alveg heilir 9 dagar eftir svo ekkert annað í stöðunni nema að nýta þá til hins ítrasta og hafa gaman!!
Þangað til næst!
Adíós
Mardís
p.s. - fullt af myndum á leiðinni !!
nýr bumbubúiMardís og Ragga
Mig langar að byrja á því að óska stóru systur minni henni Gunnhildi (og að sjálfsögðu Eggerti líka og Theodóri litla manninum í lífi mínu) formlega til hamingju með nýja bumbubúann!! Oh my hvað ég get ekki beðið eftir að koma heim og sjá bumbuna 

En það styttist óðum í heimkomu og styttist enn meira í að ég fari til Köben. Ég var einmitt að panta flug núna áðan, það kostaði 130 evrur, ok fínt verð, NEI... það eru 22.230 kr (ef evran er 171) sem er geðbilun og ógeðslega pirrandi. En sem betur fer fékk ég Sterling flugmiðann endurgreiddan, annars hefði ég líklegast farið og lamið einhvern, helst eina hóru, en þær eru einmitt búnar að færa sig yfir á götuna okkar, því löggan er farin að standa í "hórugötunni" kvölds og morgna.
Annars er svo margt sem ég þarf að segja frá að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Haukur kom þann 19.okt og var hérna til 5.nóv, það var æði að fá hann loksins og gerðum við margt skemmtilegt, dýragarðinn, fótboltaleik, Sagrada Familia, Park Guell Port Aventura, Ólympíuleikvanginn, Gosbrunnashow svona nánast það sama og hitt parið gerði 
myndir: http://www.picturetrail.com/bcn
Daginn eftir að Haukur fór skellti ég mér til Ítalíu en Ingibjörg góðvinkona mömmu var svo indæl að bjóða mér til sín. Hún býr í litlum bæ um 2 klst frá Mílano, heitir Sirmione.Við áttum saman yndislega helgi! Flugið var um 1 og hálfur tími og mér fannst það vera svona 20 mínútur, en það er einungis vegna þess að ég hef bara verið í ógeðslega leiðinlegum og löngum flugum síðustu ár. Fyrsta daginn fórum þá beint í moll og skoðuðum og versluðum einnig smá og fórum svo út að borða á voða huggulegum pizzustað. Á föstudeginum fórum við til Feneyja, það var mikil upplifun, tókum mikið af myndum sem ég fer að setja á netið. Á laugardeginum kíktum við svo í lítinn bæ og skoðuðum og borðuðum góðan mat og höfðum það rosalega gott, svo fór ég aftur til Barcelona á sunnudeginum. Það var æðislegt að láta dekra smá við sig í kreppunni. Takk aftur innilega fyrir mig!!
ég og ingibjörg í Feneyjum
Annars munu næstu 2 vikur fara aðallega í rækina og að læra fyrir lokaprófið í skólanum og kannski smá gaman líka til að kveðja Barcelona. Svo er það bara beinustu leið til Köben, get ekki beðið eftir að fara þangað, beint í jólastemminguna og kuldann! Íris frænka er jafnvel að pæla í að hitta mig þar og hafa það gott! Er þó orðin smá stressuð yfir að koma ekki öllu dótinu í töskuna en það hlýtur að reddast, ég giska á að ég sé um 30 kg tösku og stelpan í check-in-inu á Keflavíkurflugvelli var svo mössuð að hún reif töskuna mína smá, veit ekki alveg hvernig hún fór að því, en allavega þá er ég í vondum málum.
Annars vöknuðum við klukkan 6 í morgun við læti í íbúðinni fyrir ofan eða neðan okkur. Mér heyrðist fólkið reyndar vera inni hjá okkur, það voru svo mikil læti, píkuskrækir, gaurar með háan, pirrandi hlátur og leiðinleg tónlist, gerist ekki mikið verra! Góð hugmynd að hafa eftirpartý á miðvikudegi klukkan 6, hvað er að fólki?? Ég og Mardís sem ætluðum að ná góðum svefni, allt ónýtt.. þegar ég var búin að vera þolinmóð í u.þ.b. 40 mín fékk ég nóg og strunsaði upp úr rúminu og út á svalir, en sá engan neins staðar, og fór þá fram á gang og gat engan veginn fundið út frá hvaða íbúð lætin komu, þannig að ég fór bara aftur inn í rúm enn pirraðari...hefði ekki viljað mæta sjálfri mér á ganginum, það er á hreinu. Svo mættum við í skólann, viðbjóðslega þreyttar og þá er heiladauði kínverjinn í bekknum okkar mættur, sem bætti ekki ástandið í morgun. En ég er öll að koma til, búin að leggja mig og svona 
En ég er að pæla í fá mér eins og eitt stk. myoplex og skella mér í ræktina!
Annars get ég ekki lýst því hversu mikið ég sakna allra heima, hlakka svo mikið til að koma heim, beint í jólin, ég elska jólin! Skreyta, kaupa jólagjafir, allur gourmet maturinn, öll jólaboðin, spila, borða afganga, hanga á náttfötunum heima og allt sem fylgir, fæ kitl í magann við tilhugsunina ...mmmhmm 
Kossar og knús frá Barcelona
Ragnheiður

11.nóvemberMardís og Ragga
Núna erum við vinkonurnar aftur orðnar einar í kotinu. Báðir Haukarnir farnir og erum við búnar að ræða saman um kveðjustundirnar hjá okkur hvor fyrir sig og voru þær báðar víst ansi dramatískar eins og okkur einum er lagið;)
Það var yndislegt að fá strákana og gerðum við alveg fullt af skemmtilegum hlutum. Ég og minn Haukur fórum og skoðuðum la sagrada familia, park güell, höfnina, leigðum okkur hjól og hjóluðum bókstaflega um alla borgina, fórum í port aventura, borðuðum góðan mat, versluðum smá fyrir Hauk, fórum á fótboltaleik og fleira og fleira og fleira.... Við vorum líka svo ótrúlega heppin með veður en eins og ég bloggaði um síðast þá er búið að vera svo leiðinlegt veður en síðustu viku er búið að vera í kringum 17-22 stiga hiti og bullandi sólskin.
Ragnheiður og Haukur Harðar höfðu það líka voðalega gott og gerðu líka endalaust skemmtilegt saman. Svo þegar Haukur hennar fór þá skellti hún sér til Ítalíu þar sem hún dvaldi hjá Ingibjörgu vinkonu Helgu Margrétar mömmu hennar í miklu yfirlæti og skoðaði og gerði fullt skemmtilegt með henni, fór m.a. til Feneyja (öfund!).. Hún segir ykkur eflaust betur frá þeirri ferð síðar.
Svona í tilefni þess að við erum hér að læra spænsku finnst mér nú kominn tími til að monta mig yfir kunnáttu okkar:....
No puedo esperar a
llegar a casa a Islandia, se encuentran y se abrazan me encanta todo el mundo y
se pierda tanto. Tambíen he sido nunca como emocionados por la Navidad y la
nieve y el frío.
Es tan cierto que Islandia es el mejor país en el mundo!!
Þetta þýðist:
Ég get ekki beðið eftir að koma heim til íslands og hitta og knúsa alla sem ég elska og sakna svo mikið. Líka, þá hef ég aldrei verið svona spennt fyrir jólunum, snjónum og kuldanum sem þeim fylgir oftast. Það er svo satt að Ísland er besta land í heimi!!
Að lokum langar mig að óska elsku pabba mínum til hamingju með afmælið í gær, 10 nóv. Orðinn 48 ára gamall kallinn. Hún Helga mamma hennar Röggu átti líka afmæli á föstudaginn síðasta 7. nóvember og langar mig líka að óska henni innilega til hamingju og senda knús og kossa til þeirra tveggja.
Við getum ekki neitað fyrir það að okkur langaði ólýsanlega mikið að vera heima þessa daga.
En nóg í bili.
Búin að setja myndir inná netið af heimsókninni hans Hauks – endlaust af dúlló kæró myndum bara fyrir ykkur.
http://www.imageevent.com/mardis/hh
Ástarkveðja frá Barcelona
Mardís.
ég syng í rigningu...Mardís og Ragga
Bölvað vesen á þessu veðri hér í Barcelona.
Stanslaus rigning og ég held að hún ætli bara ekkert að hætta, er búið að rigna alveg frá því á mánudaginn. Ok reyndar ekki í gær en aftur í dag samt.
Ragga og Haukur skelltu sér í Port Aventura í dag sem er skemmtigarður hérna klst fyrir utan Barcelona, sem mér finnst pirrandi því að við ætluðum að fara með þeim á sunnudaginn, þá meina ég, ég og Haukur. Pörin tvö, elska pör - ég er nefnilega þessi paratýpa. En þá var ekki bara spá rigningu heldur slatta af þrumum með, svo það plan fauk út í veður og vind - bókstaflega!
Annars er allt voðalega fínt að frétta, ég er orðin svo helmössuð að ég held að hauksi muni ekki koma til með að þekkja mig á flugvellinum á morgun! Er að spá í að skella mér bara á svona vaxtarræktarmót þegar ég kem heim til Íslands, hnykkla vöðvana í mini mini latex bikini - hljómar ansi vel fyrir mér.
En jæja, hef voðalega lítið að segja. Eins og ég hef voðalega lítið að gera þessa stundina - svo ætli ég láti þetta ekki gott heita.
Eitt samt - ég veit að peningar eru ekki allt, en það væri geðveikt vel þegið ef guð myndi hella yfir mig eins og ca 40-100 bláum seðlum. Svo ef einhver gæti komið þeim skilaboðum til skila þá væri það vel þegið.
Betra blogg kemur fljótlega - promise!
XOXO
Bloggedí blogg blogg bloggMardís og Ragga
Ó jú gæs.
Maður þarf að taka góða bloggpásu til að fá nóg af
kommentum. Þið eruð samt snillar.
En já, núna er rúm vika liðin síðan við komum úr
helgarferðinni góðu og margt hefur nú skeð síðan þá. En byrjum á byrjuninni. Það
var yndislegt í Figueres. Þetta er svona pínulítill ekta spánskur bær ca 2 tímum
fyrir utan Barcelona. Ferðin byrjaði þó ekkert sérstaklega vel þar sem vesendrósin
hún Andrea, byrjaði á að seinka ferð okkar um klst. Algjörlega án nokkurrar ástæðu,
svo þegar ég og Ragga vorum komnar á lestarstöðina, sjálfsögðu á réttum tíma og
10 mín í brottför þá var þetta litla kvikindi ekkert komið, og við biðum og
biðum, Svo þegar taxinn hennar loksins kom þá var hún ekki með pening svo við
redduðum því að sjálfsögðu. Og Andrea sumsé olli því að við misstum af
lestinni, biðum þá í klst og þegar við ætluðum að fara í lestina þá var búið að
seinka henni aftur um hálftíma. Hefði verið mesta snlldin að halda sig við
upprunalega tímaplanið Drea!!
En íbúðin sem við leigðum var súper. Góður matur var
borðaður og vel labbað um bæinn. Bærinn geymir hið margrómaða Dalí safn og í
tilefni þess hversu menningarlegar við erum, drifum við okkur þangað á
laugardeginum – safnið ótrúlega flott.
Á sunnudeginum lá svo leiðin heim á leið, en Röggu uppá
flugvöll. Haukur Harðar flýtti ferðinni og er búinn að vera hér núna í 8 daga
og á heila 8 daga eftir!!
Þau eru showing off allan daginn hérna í íbúðinni, alltaf í sleik og svona
næsheit. Andrea er mér innan handar, án gríns. Það er búið að vera voðalega
gott að hafa hana og ég veit hún er sama sinnis.
Við vorum einmitt voðalega flottar á því um helgina og
höfðum lord of the rings maraþon!! Ég veit hvernig það hljómar, en það var samt
mjög gaman, myglað samt, en gaman!
Svo er ungur íslenskur drengur hér að nafni Hjalti Axel sem
var að hefja nám hérna í Barcelona. Og þar sem ísland er nú svo lítið land þá
könnuðumst við soldið við hann, og Haukur Harðar aðeins meir svo við skelltum
okkur út að borða með honum og kærustunni hans, henni Huldu á föstudaginn síðasta.
Svo stungu pörin mig og dreu af og við fórum okkar eigin leið og mojitobar.
Skólinn gengur sinn vanagang, en í síðustu viku fór ég í
svokallaðan “conversation class” og var þá alltaf í skólanum til kl.16. Ég
lærði fullt á þessu, en aðallega öðlaðist ég meira sjálfstraust í að tala málið.
En þetta kemur allt saman með tímanum, að sjálfsögðu. Ég er bara svo óþolinmóð
að mig langar að kunna þetta allt saman núna!!!
En ég er skíthrædd um að þessi vika eigi eftir að vera svo ógeðslega
lengi að líða, Haukur minn er nefnilega að koma á laugardaginn, og ég get ekki
beðið!! Það verður svo gott að sjá hann;)... 4 dagar, 4 dagar...
En nóg í bili, ætla að demba mér í heimanámið – stuð!
Og já myndir - www.imageevent.com/mardis/figueres
Sama lykilorð, endilega sendið á mig póst ef þið viljið fá það.
Love,
Mardís.
HelgarplanMardís og Ragga
Þar erum við búnar að finna ágætis íbúð á fínasta verði og ætlum að dvelja þar í tvær nætur. Gaman gaman.
)En Bledzik.
Mardís (og Ragnheiður sem hljóp á undan mér í ræktina)
P.S
Við erum komnar með spænskt símanúmer fyrir nokkru síðan en gleymdum alltaf að láta vita.
Við erum farnar að sakna allra soldið og komnar með craving að fá að heyra í ykkur svo endilega ef þið hafið tíma og tímið stuttu símtali þá endilega bjallið;)
Mardís: (0034) 634 176 268
Ragga: (0034) 634 148 933
update og myndirMardís og Ragga
13.okt vá hvað tíminn er fljótur að líða! Nú eru elsku mamma og pabbi farin, við áttum saman yndislega viku þar sem milljón hlutir voru gerðir, m.a. borðuðum við á hverju kvöldi hreint út sagt unaðslegan mat, skoðuðum la sagrada de familia, gaudi safnið sem er stórkostlegt þræddum allar götur borgarinn fram og tilbaka, fórum í sædýrasafnið, á montserrat fjallið og upplifðum stórkostlegt útsýni, vínsmökkun, skoðunarferðir meiri mat og ég veit ekki hvað og hvað.Svo var vinur mömmu og pabba, Steinar staddur hér í Barcelona en hann starfar sem stýrimaður á æðislegu skemmtiferðaskipi sem lagði í höfn einmitt hér í Barcelona á nákvæmlega sama tíma og ma og pa voru hér og fengum við að sjá the grand tour um skipið! GEGGJAÐ
Það var svolítið erfitt að kveðja þau en maður verður víst að sætta sig við það að maður er orðinn “fullorðinn” og þarf að harka af sér og kyngja stoltinu;)
Afmælið mitt í síðustu viku var æðislegt. Ragga var því miður sárlasin og hélt sig því heima yfir daginn á meðan við flökkuðum um allan bæinn og átum tapas og skoðuðum byggingar og staði og fleira. En um kvöldið fórum við á einn af top 10 bestu veitingastöðunum hérna og ég held ég sleppi því bara að fara út í lýsingarnar á matnum!!! Svo langar mig líka að þakka öllum æðislega vel fyrir afmæliskveðjurnar, yndislegt að fólk muni eftir manni.

Skólinn gengur vel og þetta blessaða tungumál er farið að síast nokkuð vel inní mann. Við erum samt búnar að ákveða að fara í svona sérstaka “conversations class” þar sem maður þarf að tala stanslaust á spænsku í tvo tíma. Þá fyrst fer maður að brillera. Svo er skólinn líka fluttur í nýtt húsnæði sem er vægast sagt geðveikt, á hinum staðnum var allt svo gamalt og lúið. Ég er ekki enn búin að taka myndir en skal drífa mig í að gera það!

Kennarinn sem við hötuðum fyrst er orðinn æðislegur eins kaldhæðnislegt og það hljómar. Hann er ótrúlega skemmtilegur og allt sem við erum að læra er algjörlega honum að þakka. Honum þykir einmitt sérstaklega skemmtilegt að segja frá hefðum og venjum spánverja í aldanna rásir og er einstaklega gaman að hlusta á hann oft á tíðum.
Í dag fræddi hann okkur t.d. um kirkjugarða og skipulagið á þeim hérlendis. Þeir látnu eru sumsé ekki grafnir eins og tíðkast í flestum öðrum löndum, heldur eru sérstök hólf sem eru stöfluð hvert ofan á annað og líkkistunni svo stungið þar inn. Þannig að það getur verið allt að 7-10 kistur í einum stafla, hver ofan á annarri. Alltí lagi með það.
Þá fór hann að segja okkur frá því að það geta verið allt til 2-15 manneskjur í einni kistu! Já þið lásuð rétt. Þá komum við að því hvernig það virkar? Hinn ástkæri kennari okkar átti nú auðvelt með að svara því um hæl og sagði:
“það er auðvita misjafnt, eins og amma mín, hún var tekin úr kistunni þegar afi dó og söguð í búta og sett í poka og svo pokinn sett í kistuna með afa!”
Þið getið rétt ímyndað ykkur svipinn á okkur vinkonunum en ég veit ekki með ykkur en þetta þótti okkur ansi skrítið! Svo geta gömul lík verið misjöfn sagði hann og sumum er hægt að sópa saman, allt eftir því hversu gömul þau eru o.s.frv. Ég virði alveg og skil venjur þessa ágætu spánverja en ég held að ég kjósi frekar að fá að rest in peace!!
Á dagskrá þessa vikuna er skólinn, ræktin og að vera mega duglegar að gera eitthvað nýtt og spennandi. Í kvöld ætlum við að hitta Dreu og skella okkur á hiphop kvöld og á miðvikudaginn eða fimmtudaginn er stefnan tekin á salsaklúbbakvöld. Einn daginn eftir skóla langar mig líka að kíkja í Park Güell en það er skömm að segja frá því að þangað hef ég ekki komið ennþá!
Svo ætlum við næstu helgi að reyna að fara aðeins út fyrir borgarmörkin og skella okkur í roadtrip, hvort sem okkur tekst að taka bílaleigubíl, eða lest eitthvað og hjóla svo. Bara eitthvað nýtt og spennandi, lenda í ævintýrum eins og Ragga orðaði það svo vel. Við erum því á fullu núna að skoða og ákveða hvert ferðinni er heitið.
En nóg í bili, ætlaði bara að henda inn stuttu bloggi og láta vita að ég er búin að setja nýjar myndir inná netið.
http://www.imageevent.com/mardis/oktober
Veriði sæl að sinni.
Mardís og Ragnheiður
p.s.
Það lítur út fyrir það að við stöllur verðum óbeint partur af jólabókaflóðinu
http://www.jonsdottir.com/is/node/96
Húúúún á afmćli í dag!!!Mardís og Ragga
Dagurinn í dag, 8.október er merkilegur dagur, því að hún Mardís afmæli, hún er tvítug!!
Og myspace síða um þetta: Held þetta verði skemmtilegt!!
Eins og er eyðir hún deginum í túristaferð með foreldrum sínum. Á meðan sit ég heima að læra, vinna upp það sem eg hef misst úr þar sem ég hef verið veik síðustu tvo daga, en fékk heiftarlega gubbupest í fyrradag, frekar leiðinlegt.. og hef aðeins borðað kjúklingasúpu og súkkulaði og drukkið sítrónuvatn með hunangi í tvo daga. En er öll að koma til og verð komin í alvöru mat í kvöld vonandi! Þannig að nú höfum við báðar verið veikar og vona ég innilega að sá pakki sé þá bara búinn í bili!!
Héðan er allt fínt að frétta. Búið að vera rosa fínt veður og enn hægt að ganga um í stuttermabolum og jafnvel berleggja! (þetta er til allra í kuldanum heima sem voru leiðinlegir við mig þegar ég var útí Indlandi í monsoon rigningu meðan heitasti mánuður í sögu Íslands stóð yfir). Eitt afar fyndið atvik sem átti sér stað þarsíðustu helgi en þá buðum við Andreu í mat til okkar og við kíktum svo út, höfðum fyrr um kvöldið rætt það að hann Ásgrímur vinur okkar væri víst í Barcelona, og hvað það hefði verið gaman að hitta hann. Eftir mat og nokkur hvítvínsglös héldum við svo út á Römblu í hraðbanka og viti menn, gengur Ási framhjá okkur, þvílík og önnur eins tilviljun! Og að sjálfsögðu fórum öll saman á Catwalk og dönsuðum fram á rauða nótt!
við
ég ánægð að sjá Ása
Síðasta laugardagsmorgun komu Heimir og Ella (foreldrar Mardísar fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu en ættu að vera með það á hreinu) þau munu dvelja hjá okkur í viku! Frábært að fá þau, okkur vantaði smá foreldraknús! Fórum öll saman á Barcelona vs. Atlético Madrid á laugardagskvöld og djöfulsins snilld sem það var, leikurinn fór 6-1 fyrir Barcelona og Eiður frændi skoraði meira segja ;) Mjög skemmtilegur leikur, eitthvað sem við vorum ekki alveg að búast við! Gátum þó ekki öll setið saman, þar sem það er megavesen að fá 4 sæti saman vegna þess að klúbbmeðlimir eiga nánast öll sæti á leikvanginum en við gátum þó setið tvö og tvö. Ég og Mardís sátum hliðina á sætum gömlum manni sem var með vindil –sem minnti mig á pabba. Og hikaði hann ekki við að faðma sessunaut sinn hana Mardísi eftir hvert mark, og þau voru nú ekki fá ..hahah! Á þriðjudag fórum við svo á Súkkulaðisafnið, ótrúlegt hvað hægt er að gera við súkkulaði annað en að borða það, mjög skemmtilegt fyrir súkkulaðiloverinn mig, fyrir utan það að ég var orðin veik og gat þar af leiðandi ekki étið neitt súkkulaði heldur fór heim að vera veik og æla.

Það sem er framundan
Á föstudag ætlum við að fara á Zombiegönguna sem er eins konar skrúðganga með fólki sem hefur klætt sig upp sem uppvakningar. Hún er haldin í bæ sem heitir Sitges, rétt hálftíma frá Barcelona. En Julí kennarinn okkar (þessi leiðinlegi) sagði okkur frá henni, en hann sagði einnig að í þessum bæ búa mikið af samkynhneigðu fólki og að þetta væri bær hrollvekjanna, eða eitthvað þannig, Mardís heldur því fram að hann hafi sagt bær klámmyndanna og getur það líka vel verið, en maður heyrir bara það sem maður vill heyra ;) Allavega sé ég enga sérstaka tengingu milli kláms og uppvakninga, en kannski gera það einhverjir!
Hér er afar steikt myndband sem er auglýsing fyrir Zombiegönguna: http://tzss.org/?p=184
http://www.myspace.com/sitgesfilmfestival

Á laugardag: ekki alveg komið á hreint, smá afmælisteiti fyrir Mardísi líklegt, eða sangríupartý hjá Hollendingunum í bekknum okkar!
Eitt annað sem er skemmtilegt...það er Halloween þema í Port Aventura skemmtigarðinum, eitthvað fyrir mig! En ætla þó að bíða með að fara þangað þar til Haukur kemur, sem er aðeins eftir 20 daga í dag!
Og LOKSINS loksins loksins er evran að skána, fínt að festa hana bara, gott mál. Var einmitt farin að sjá fram á að leigan myndi hækka um 20 þús, það er ekkert lítið! Þetta stefndi bara í tómt rugl.
p.s. ég kem í helgarblaði DV, einmitt viðtal sem hann Boði blaðamaður tók, í sambandi við kreppuna, góðvinkonu okkar allra, þið vitið bara af því ;)
Nóg af myndum á leiðinni!
Kossar og knús og ást og söknuður
Ragnheiður og Mardís afmælisbarn
FOKKIN EVRAMardís og Ragga
Ég held ég sé á leið heim með kvef og hita og tóma buddu
Nei ég segi svona en þetta er alls ekki gott. Og svona án alls gríns þá veit ég barasta ekki alveg hvernig ég á að lifa síðasta mánuðinn minn af hérna úti!!
Helvítis kreppa ég segi ekki annað!
ţegiđu gústi!Mardís og Ragga
Jæja, þá er enn ein helgin liðin og erum við bráðum að fara að halda uppá 3ja vikna afmæli okkar hér í Barcelona - þetta er kannski soldið fljótt að líða eftir allt saman og um að gera að nýta tímann hérna sem allra best!Helgin var sumsé rosalega notaleg og frábrugðin síðustu tveim helgum.
